Skip to content
zeno
Create a Station
Explore
Religious
Music
News
Podcasts
Bible
By Genre
By Location
By Language
Download App
Opens in a new window
Toggle Sidebar
zeno
RÚV
Spegillinn
News & Politics
Icelandic
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Website
Episodes
Episodes
300
06 August 2026
Íslenskir bændur og ESB
Íslenskur landbúnaður stendur á krossgötum, segir í skýrslu Bændasamtakanna um mögulega aðild að Evrópusambandinu. Bændur hafa boðað aukabúnaðarþing 14. ágúst og þar á að ræða og álykta um þessi mál. Í skýrslunni sem kynnt var í morgun er á um 130 síðum og í átta köflum farið yfir hvort í ESB-aðild fælist fyrst og fremst tæknileg breyting eða kerfisbreyting fyrir íslenskan landbúnað og sjónum...
10 min
05 August 2026
Skyldur Íslands í loftslagsmálum
Í ráðgefandi áliti Alþjóðadómstólsins í Haag á skyldum ríkja vegna loftslagsbreytinga frá því í fyrra kemur skýrt fram að þar sem loftslagsmál hafi áhrif á öllum sviðum mannlegrar tilveru, alstaðar í heiminum beri öllum heimsins ríkjum skylda til þess að vernda loftslagið af fremsta megni. Bjarni Már Magnússon, doktor í lögfræði og sérfræðingur í þjóðarétti, rýndi í álitið fyrir Loftslagsráð....
10 min
04 August 2026
Ábyrgð og skyldur ríkja í loftslagsmálum
Ár er liðið frá því að Alþjóðadómstóllinn í Haag birti ráðgefandi álit á skyldum ríkja vegna loftslagsbreytinga. Eftir mikla gagnarýni og langan málflutning komst dómstóllinn að einróma niðurstöðu um að loftslagsmál hefðu áhrif á öllum sviðum mannlegrar tilveru, alstaðar í heiminum, og að öllum ríkjum bæri því skylda til þess að vernda loftslagið af fremsta megni. Bjarni Már Magnússon, doktor í...
9 min
31 July 2026
Minkasleppingar - dýravernd eða skemmdarverk?
Íslenskar löggæslustofnanir á láði og legi hafa haft í nógu að snúast síðustu sólarhringa vegna aðgerða sem tengjast umdeildu dýrahaldi og dýraveiðum. Hér er vísað til innbrots óþekktra aðila í síðasta minkabú landsins annars vegar, Dalsbú í Mosfellsdal, og aðgerðir félaga í Paul Watson-samtökunum gegn hvalveiðiskipum Hvals hf. hins vegar. Rétt er að undirstrika að ekki er vitað hver það eru sem...
10 min
30 July 2026
Baráttan um boltann - FIFA og EUFA takast á
Þetta er Spegillinn. Umsjónarmaður er Ævar Örn Jósepsson. Öll aðildarsambönd Evrópska knattspyrnusambandsins ætla að sniðganga HM í fótbolta ef áform forseta sambandsins um að selja 20 prósenta hlut í mótinu ná fram að ganga. Þetta var samþykkt á neyðarfundi evrópska sambandsins í dag. Breska ríkisútvarpið, BBC, hefur eftir ónefndum heimildarmönnum að andrúmsloftið á fundinum hafi verið...
10 min
29 July 2026
Minkar á Íslandi - lausir og villtir
Hundruðum og jafnvel þúsundum minka var sleppt úr búrum sínum á síðasta minkabúi landsins, Dalsbúi í Mosfellsdal, á miðvikudag og einhver hundruð hið minnsta sluppu út úr húsi. Svo virðist sem fæstir þeirra hafi komist út fyrir öryggisgirðingu sem umlykur búið, en fregnir hafa þó borist af dýrum utan hennar.Eldisminkar eru um margt frábrugðnir villtu minkunum, sem þó eru allir afkomendur fyrri...
9 min
28 July 2026
Stéttarfélög og ESB
Síðast þegar íslensk stjórnvöld sóttust eftir inngöngu í Evrópusambandið var drjúgur meirihluti innan Alþýðusambands Íslands hlynntur þeirri vegferð. Sú afstaða kom meðal annars fram í ræðum, ályktunum og samþykktum á þingum ASÍ, og það ítrekað. En hvernig er þetta í dag? Hólmfríður María Ragnhildardóttir kannar málið og ræðir við Finnbjörn Hermannsson, forseta ASÍ.Umsjón: Ævar Örn...
10 min
27 July 2026
Sprenging í net- og símaglæpum
Óhætt er að segja að sannkölluð sprenging hafi orðið á sviði net- og símglæpa af öllu tagi, á allra síðustu árum. Skipulögð, fjölþjóðleg glæpasamtök hafa komið sér upp stærðarinnar úthringi- og tölvuverum, sem gera ekki annað en að reyna að svíkja fé af fólki alstaðar í heiminum allan daginn alla daga allan ársins hring með hinum fjölbreytilegustu aðferðum. Og sækist það giska vel. Raktar eru...
9 min
24 July 2026
9 min
23 July 2026
Kjarnorkusamningar Bandaríkjanna og Sádi-Arabíu
Orkumálaráðherrar Bandaríkjanna og Sádi-Arabíu skrifuðu í gærkvöld undir tvo samninga um kjarnorkumál, um samvinnu ríkjanna um nýtingu Sáda á kjarnorku til orkuframleiðslu og eftirliti með henniSamningurinn er til þrjátíu ára og er ætlað að uppfylla „orkuþörf“ olíuveldisins Sádi-Arabíu, samkvæmt tilkynningu bandaríska orkumálaráðherrans, Chris Wright, en í langtíma efnahagsáætlun Sáda er gert ráð...
10 min